Börn og fjölskylda
Foreldragreiðslur
Foreldragreiðslurnar gefa foreldrum kost á því að sleppa vinnu til þess að annast barn sitt.
Þakka má foreldragreiðslunum það að foreldrar geta tekið sér leyfi og fengið bætur hvort sem það er í lengri tíma, einn og einn dag eða hluta úr degi.
Hversu langt er foreldraorlofið?
Foreldraorlof má taka út þar til barnið er orðið átta ára eða hefur lokið sínu fyrsta skólaári. Þegar forsjá er sameiginleg eiga foreldrar rétt á foreldragreiðslum í 240 daga hvort. 60 dagar eru fráteknir fyrir hvort foreldri um sig. Því sem eftir er af orlofinu má skipta á milli foreldra. Ófrísk kona getur byrjað að taka út foreldragreiðslur 60 dögum fyrir áætlaða fæðingu.
Hvernig eru greiðslurnar?
Foreldragreiðslurnar eru greiddar í þremur mismunandi þrepum. Fyrsta þrepið kallast sjúkrabótaþrep og er reiknað út frá þeim tekjum sem ákvarða sjúkrabótarétt einstaklingsins. Þeir sem hafa verið með lágar eða engar tekjur geta í staðinn fengið grunnbætur. Þessi tvö þrep greiðast í 390 daga. Þriðja þrepið er kallað lágmarksþrep og greitt er samkvæmt því þá 90 daga sem eftir eru. Foreldragreiðslurnar er hægt að fá útborgaðar sem fullar, þrjá fjórðu, hálfar, fjórðungs eða áttundaparts bætur.
Barnabætur
Barn sem býr í Svíþjóð á rétt á barnabótum. Foreldrar þurfa ekki að sækja um barnabætur. Barnabæturnar greiðast því foreldri sem skráð er hjá Försäkringskassan.
Hvernig eru bæturnar greiddar?
Bæturnar greiðast frá og með mánuðinum eftir fæðingu barnsins eða seinna, t.d. ef barnið flytur til Svíþjóðar. Barnabæturnar eru skattfrjálsar og greiðast til og með þeim ársfjórðungi sem barnið nær 16 ára aldri. Barnabæturnar nema 1.050 sænskum krónum á barn á mánuði. Barnabótaauki vegna barnafjölda er greiddur sjálfkrafa ef barnabætur eru greiddar fyrir a.m.k. tvö börn. Upphæð barnabótaaukans fer eftir fjölda barna á barnabótum.
Hve lengi eru barnabætur greiddar?
Barnabæturnar greiðast til og með síðasta ársfjórðungnum sem barnið verður 16 ára. Ef barnið sækir menntaskóla, greiðir Centrala studiestödsnämnden (CSN) námsstyrk. Í slíkum tilfellum er styrkurinn greiddur út sjálfkrafa án umsóknar. Ef barnið er aftur á móti enn í grunnskóla eða í sérskóla, greiðir Försäkringskassan framlengingu á barnabótum og þær greiðslur hefjast í ársfjórðungnum eftir að barnið verður 16 ára.