Sjúkratryggingar

Veitt þjónusta í veikindum – læknismeðferð

Einstaklingar eiga rétt á læknishjálp í því landi sem viðkomandi býr og /eða vinnur í. Þar fyrir utan eiga einstaklingar alltaf rétt á nauðsynlegri læknismeðferð á meðan dvalið er tímabundið annars staðar á Norðurlöndunum.

Í sumum Norðurlandanna þarf að greiða fyrir læknisheimsókn.

Meira lesefni er að finna um heilbrigðiskerfi einstakra landa, undir nafni hvers lands.

Greiðslur í veikindum

Á Norðurlöndunum eiga allir rétt á sjúkradagpeningum skv. grundvallarreglum. Mikill munur er á fyrirkomulagi sjúkradagpeningagreiðslna frá einu landi til annars.

Ef flutt er til annars norræns lands
Sá sem fær sjúkradagpeninga á rétt á þeim, þótt hann flytji til eða dvelji tímabundið í öðru norrænu landi. Vakin er athygli á því að áfram þarf að taka þátt í t.d. eftirfylgni, læknisskoðun o.þ.h.