Börn og fjölskylda
Fjölskyldugreiðslur í Noregi
Barnabætur
Sá sem hefur daglegt forræði yfir börnum undir 18 ára aldri á rétt á barnabótum. Þetta eru skattfrjálsar bætur.
Sá sem hefur einn forræði yfir börnum undir 18 ára aldri, á rétt á barnabótum sem svara til eins aukabarns. Einstæðir foreldrar geta einnig fengið viðbótargreiðslu fyrir börn undir 3 ára aldri.
Einnig eru veittar sérstakar aukabætur fyrir börn sem búa í Norður-Noregi eða á Svalbarða
Lesið meira á www.nav.no
Beingreiðslur
Hafi maður forræði yfir barni á aldrinum 1 til 3 ára sem ekki gengur í opinberan leikskóla, getur maður fengið beingreiðslur. Lesið meira um þetta á www.nav.no
Styrkur vegna fæðingar
Kona sem hefur verið á vinnumarkaðnum, getur átt rétt á meðgöngustyrk fyrir fæðingu. Eftir fæðingu á hún rétt á foreldragreiðslum sem eru reiknaðar á sama hátt og sjúkragreiðslur.
Faðir barnsins á rétt á tímabundnum foreldragreiðslum ef móðirin hefur stundað vinnu í Noregi.
Faðir barnsins hefur sjálfstæðan rétt á foreldragreiðslum ef móðirin er veik, er í vinnu eða er í námi. Þetta gildir jafnvel þó svo að móðirin hafi ekki stundað vinnu í Noregi.
Kona sem ekki hefur stundað vinnu fyrir fæðingu fær greiddan fæðingarstyrk í eingreiðslu við fæðingu.
Lesið meira á www.nav.no