Atvinnuleysi
Dagpeningar vegna atvinnuleysis í Noregi
Dagpeningar eru að hluta til bætur vegna tekjumissis. Bæturnar eiga að aðstoða viðtakandann til þess að sækja um atvinnu eða halda atvinnu.
Skilyrði vegna dagpeninga
- Vinnutími þinn verður að hafa verið skertur um a.m.k. 50 prósent
- Þú verður að hafa haft atvinnutekjur yfir ákveðnu lágmarki
- Þú verður að vera í virkri atvinnuleit og senda skráningarkort 14. hvern dag
- Þú getur yfirleitt ekki verið nemandi eða námsmaður
Hvernig á að sækja um dagpeninga í Noregi?
Þú verður að skrá að þig sem einstakling í atvinnuleit. Það er hægt að gera á www.nav.no eða með því að mæta á staðarskrifstofu atvinnu- og tryggingastofnunar (NAV).
Greiðsla
Dagpeningar eru í fyrsta lagi greiddir út frá og með þeim degi sem beiðni um dagpeninga var send inn.
Flestar umsóknir eru meðhöndlaðar innan 3 vikna.
Lesið meira á www.nav.no