Nokkrar staðreyndir um lífeyri
Öflun lífeyris
Réttur til lífeyris ávinnst í landinu þar sem viðkomandi nýtur almannatrygginga. Það er venjulega í landinu sem unnið er í, ef viðkomandi er í vinnu, jafnvel þótt hann búi í öðru landi.
Lífeyrir við flutning
Við flutning til annars norræns lands er réttur til að fá áfram greiddan þann lífeyri sem greiddur var fyrir flutninginn. Sérstakar reglur gilda innan danska ríkjasambandsins (Danmerkur, Grænlands og Færeyja).
Öflun lífeyrisréttar í fleiri en einu norrænu landi
Hafi maður tilheyrt almannatryggingum í fleiri en einu landi, greiðist elli- eða örorkulífeyrir af hverju þessara landa, í hlutfalli við tryggingatímabil og áunninn lífeyrisrétt í hverju landanna um sig. Hafi lífeyris t.d. verið aflað í þremur löndum, fær viðkomandi hluta af lífeyrisgreiðslum frá hverju landanna þriggja. Hvert land greiðir sinn hluta lífeyrisins eftir eigin reglum og aldursviðmiðum. Vakin er athygli á að ólíkar reglur gilda innan Norðurlandanna um aldursmörk ellilífeyrisréttar.
Lífeyrisgreiðslur til fólks sem hefur ekki verið á vinnumarkaði
Á Norðurlöndunum ávinna einstaklingar sér ákveðinn lífeyrisrétt, þótt þeir séu ekki í launaðri vinnu. Hafi viðkomandi búið í fleiri en einu Norðurlandanna, án þess að vera á vinnumarkaði, getur hann átt rétt á hluta lífeyris frá hverju landanna sem viðkomandi hefur búið í, eftir tímalengd búsetunnar þar. Vakin er athygli á því að aldursmörk ellilífeyrisréttar eru mismunandi innan Norðurlandanna. Lífeyri sem byggist eingöngu á búsetu í einu Norðurlandanna, er hægt að fá greiddan áfram þegar flutt er til annars norræns lands á sama hátt og lífeyri sem hefur áunnist á grundvelli vinnu.