Lífeyrismál

Lífeyristryggingar

Helstu bótaflokkar lífeyristrygginga almannatrygginga eru:

Ellilífeyrir

Til að öðlast rétt til ellilífeyris þarf einstaklingur að vera 67 ára eða eldri og hafa búið á Íslandi í a.m.k. 3 almanaksár frá 16-67 ára aldurs. Ellilífeyrir er greiddur frá 67 ára aldri. Búseta í 40 ár á aldrinum 16-67 ára veitir rétt á fullum ellilífeyri en styttri búseta skerðir lífeyrinn hlutfallslega. Þannig fer upphæð lífeyris eftir lengd búsetunnar. Fjárhæð ellilífeyris er ákveðin í lögum en tekjur lífeyrisþega hafa áhrif á hana.

Tekjutrygging

Tekjutrygging er greidd ef einstaklingur er með tekjur undir ákveðnu marki.

Heimilisuppbót

Heimilt er að greiða heimilisuppbót til elli- og örorkulífeyrisþega sem búa einir og eru einir um heimilisrekstur.

Örorkulífeyrir

Örorkulífeyrir greiðist ef örorka er metin 75% til langframa vegna afleiðinga læknisfræðilega viðurkenndra sjúkdóma eða fötlunar. Fjárhæð örorkulífeyris fer eftir lengd búsetutíma á Íslandi og tekjum lífeyrisþegans. Helstu skilyrði eru að  einstaklingur hafi verið  metinn til að minnsta kosti  75% örorku,  séu á aldrinum 18-67 ára og hafi búið á Íslandi í a.m.k. síðustu þrjú árin áður en umsókn er lögð fram.

Ýmsar uppbætur

Heimilt er að greiða uppbót til viðbótar við lífeyri þegar t.d. lífeyrisþegi hefur mikinn lyfjakostnað, þarfnast umönnunar annars aðila, hefur kostnað af dvöl á sambýli o.fl.  Skilyrði er m.a. að tekjur eða eignir í peningum og verðbréfum séu undir ákveðinni upphæð. 

Endurhæfingarlífeyrir

Heimilt er að greiða endurhæfingarlífeyri þegar ekki verður séð hver varanleg örorka verður eftir sjúkdóm eða slys. Skilyrði eru m.a. að sjúklingur gangist undir viðurkennda greiningu eða meðferð á eða utan sjúkrastofnunar, sé á aldrinum 18-67 ára, eigi lögheimili á Íslandi og hafi átt rétt á sjúkra- eða slysadagpeningum.

Örorkustyrkur

Heimilt er að greiða örorkustyrk þeim sem eru á aldrinum 18-67 ára og hafa samkvæmt mati tryggingalæknis misst 50-74% af starfsorku sinni.

Barnalífeyrir

Barnalífeyrir er greiddur með börnum yngri en 18 ára ef annað foreldri er látið eða nýtur örorku- eða endurhæfingarlífeyris. Greiddur er tvöfaldur barnalífeyrir vegna barns ef báðir foreldrar þess eru látnir eða örorkulífeyrisþegar. Barnið eða annað hvort foreldra þess þurfa að hafa átt hér lögheimili a.m.k. þrjú síðustu árin áður en umsókn er lögð fram.

Greiðslur frá lögbundnum lífeyrissjóðum

Öllum launamönnum og þeim sem stunda atvinnurekstur eða sjálfstæða starfsemi er rétt og skylt að tryggja sér lífeyrisréttindi með aðild að lífeyrissjóði frá og með 16 ára til 70 ára aldurs.  Lífeyrissjóðir greiða elli- örorku og eftirlifendalífeyri til þeirra sem greitt hafa iðgjald í viðkomandi sjóð að nánari skilyrðum uppfylltum.

Á Íslandi er annars vegar lögbundið almannatryggingakerfi fyrir alla sem eru búsettir á Íslandi og hins vegar lögbundið lífeyrissjóðakerfi fyrir þá  sem eru á vinnumarkaði.

Lífeyrisgreiðslur á Norðurlöndunum

Hér getur þú fundið yfirlit yfir lífeyrisgreiðslur á Norðurlöndunum.

Lesið meira um lífeyrisgreiðslur á Norðurlöndunum