Börn og fjölskyldur

Barnabætur

Ekki þarf að sækja sérstaklega um barnabæturnar sem greiðast með börnum til 18 ára aldurs. Barnabætur eru tekjutengdar en með hverju barni undir 7 ára aldri greiðist föst viðbótarupphæð sem er ákvörðuð án tillits til tekna.  Barnabætur eru ekki skattskyldar.  Fjársýsla ríkisins greiðir barnabætur út ársfjórðungslega, 1. febrúar, 1. maí, 1. ágúst og 1. nóvember.

Skilyrði

Á Íslandi annast skattayfirvöld útreikning barnabóta sem grundvallast á upplýsingum um hjúskaparstöðu foreldra og barnafjölda í árslok næstliðins árs fyrir úthlutun bótanna. Ennfremur er tekið mið af  tekjum vegna næstliðins árs samkvæmt skattframtali.