Sjúkratryggingar
Sjúkratryggingar
Þú getur valið á milli opinberra heilbrigðiskerfisins eða lækna í einkarekstri. FPA endurgreiðir hluta kostnaðarins þegar þú leitar til læknis í einkarekstri.
Ef þú ert skráð(ur) með búsetu í Finnlandi átt þú að öllu jöfn rétt á að nota þjónustu opinberra heilbrigðiskerfisins þ.e.a.s. heilsugæslna og sjúkrahúsa í sveitarfélaginu þínu. Þú mátt líka leita til einkarekinna læknamiðstöðva.
Ef þú ert í vinnu gæti vinnuveitandinn þinn borið ábyrgð á heilsugæslunni. Ef þú vinnur a.m.k. í 4 mánuði í Finnlandi og ert sjúkratryggð(ur) í Finnlandi, áttu að fá sjúkratryggingakort, svo kallað FPA kort. Ef þú ert frá öðru ESB/EES landi getur þú leitað til opinberra heilbrigðiskerfisins, jafnvel þótt þú vinnir skemur en í 4 mánuði í Finnlandi.
Ef þú ert námsmaður getur þú líka leitað til heilsustöðva háskólanna.
FPA kortið
Allir sem eru með fasta búsetu í Finnlandi fá FPA kort. FPA kortið sýnir að þú ert sjúkratryggð(ur) í Finnlandi. Þú þarft að hafa kortið meðferðis til þess að fá endurgreiðslur í apótekum og hjá einkareknum læknastöðvum.
Endurgreiðsla vegna kostnaðar
Yfirleitt getur þú fengið sjúkratryggingabæturnar dregnar beint af lyfjakostnaði eða gjaldi læknis. Ef bæturnar eru ekki frádregnar strax, getur þú sótt um endurgreiðslu hjá FPA á næstu sex mánuðum.
Þú getur fengið bætur, t.d. vegna ákveðinna lyfja eða vegna komugjalds á einkastofu samkvæmt taxta, vegna ferða til læknis, heilsugæslustöðva, sjúkrahúsa eða einkarekinna læknastöðva.
Sjúkradagpeningar
Ef þú ert á aldrinum 16–67 ára getur þú á rétt á sjúkradagpeningum. Sjúkradagpeningarnir ákvarðast yfirleitt á grundvelli þeirra tekna sem birtast í skattskýrslu. Upphæðin fer eftir því hvort þú ert námsmaður, hefur verið atvinnulaus eða tekið þátt í endurhæfingu eða verið með óreglulegar tekjur.
Þegar læknir hefur staðfest að þú hafir verið veik(ur) í 10 virka daga (fyrsti dagur veikindanna + 9 dagar þar á eftir) getur þú átt rétt á sjúkradagpeningum frá FPA til þess að bæta upp tekjumissi. Atvinnuveitandanum er skylt að borga veikindalaun á sjálfsábyrgðartíma. Sjálfsábyrgð atvinnurekandans er 4 dagar (fyrsti dagur veikindanna + 3 virkir dagar þar á eftir).
Ef þú þiggur laun á meðan þú ert í veikindaleyfi greiðir FPA sjúkradagpeningana til atvinnuveitandans. Ef launagreiðslur stöðvast þrátt fyrir áframhaldandi veikindaleyfi, renna sjúkradagpeningarnir til þín.
Ef veikindin valda því að þú ert óvinnufær í lengri tíma getur þú sótt um endurhæfingarstyrk eða örorkubætur.
Vinnuslys
Atvinnurekendum ber skylda til þess að vera með slysatryggingu fyrir starfsmenn sína. Hver starfsmaður er tryggður fyrir slysum sem verða í vinnunni og við aðstæður sem skapast vegna starfsins og fyrir atvinnusjúkdómum. Fyrir nema er sérstakt kerfi sem bætir skaða sem hægt er að rekja til þátttöku í verklegum æfingum. Í Finnlandi eru 13 tryggingarfélög sem bjóða upp á lögfestar slysatryggingar.