Allir sem starfa í Finnlandi vinna sér inn starfstengdan ellilífeyri. Þeir sem ekki hafa verið í launuðu starfi eða eiga inni aðeins lágmarks ellilífeyri fá greiddan búsetutengdan grunnlífeyri.
Tegundir lífeyris
Starfstengdur lífeyrir og búsetutengdur grunnlífeyrir, eru greiddir sem ellilífeyrir, örorku/sjúkrabætur, endurhæfingarbætur, atvinnuleysisbætur og fjölskyldulífeyrir. Einnig er hægt að taka út ákveðið hlutfall af atvinnutengdum ellilífeyri.
Örorkubætur eða sjúkrabætur eru greiddar þegar einstaklingurinn er varanlega óvinnufær. Endurhæfingarbæturnar eru örorkubætur sem greiddar eru í ákveðinn tíma. Endurhæfing eru ávallt fyrsti kosturinn.
Fjölskyldulífeyrir er greiddur eftirlifandi maka og börnum yngri en 18 ára. FPA greiðir einnig barnalífeyri til ungmenna sem stunda fullt nám og eru yngri en 21 árs.
Ellilífeyrisaldurinn
Ellilífeyrisaldurinn er sveigjanlegur innan starfstengda lífeyriskerfisins. Einstaklingurinn ræður sjálfur hvenær hann fer á ellilífeyri, frá aldrinum 63 til 68 ára. Grunnlífeyririnn greiðist þó í fyrsta lagi þegar einstaklingurinn hefur náð 65 ára aldri.
Að vinna sér inn lífeyrisréttindi
Venjulega vinnur fólk sér inn lífeyri sem samsvarar 1,5 prósentum af árstekjum. Hlutfallið hækkar með aldrinum. Þeir sem vinna eftir að hafa náð 53 ára aldri vinna sér inn lífeyri sem samsvarar 1,9 prósentum af árstekjum og þeir sem halda áfram að vinna eftir að hafa náð 63 ára aldri vinna sér inn lífeyri sem samsvarar 4,5 prósentum af árstekjum.
Grunnlífeyrir er reiknaður í hlutfalli við þann tíma sem umsækjandi hefur verið búsettur í Finnlandi. Ef umsækjandi hefur ekki verið búsettur í Finnlandi í að minnsta kosti 40 ár, þegar hann var á aldrinum 16-64 ára, lækkar grunnlífeyririnn í samræmi við þann tíma sem hann dvaldist erlendis.
Starfstengdur ellilífeyrir
Starfstengdi ellilífeyrinn í Finnlandi er ekki miðstýrður. Atvinnuveitendur og atvinnurekendur gera samning um lífeyristryggingu hjá lífeyristryggingafélögum, lífeyrissjóðum eða lífeyrisstofnunum. Starfstengda lífeyriskerfið rekur sameiginlega skrá yfir lífeyrisgreiðslur.
Bæði atvinnuveitandi og starfsmaður greiða lífeyristryggingagjald, en atvinnuveitandinn dregur hluta starfsmannsins af laununum og greiðir upphæðina ásamt sinni eigin.
Mismunandi lífeyrislög eru fyrir ólíka hópa. Þeir sem starfa innan einkageirans eru tryggðir samkvæmt lögum um lífeyri fyrir starfsmenn, ArPL. Sérstök lög ná yfir lífeyri atvinnurekenda, bænda, sjómanna, ríkisstarfsmanna og starfsmanna sveitarfélaga og kirkjunnar.
Grunnlífeyrir
Þú átt rétt á grunnlífeyri ef þú átt ekki rétt á neinum starfstengdum lífeyrisgreiðslum eða ef greiðslurnar eru lágar. Grunnlífeyririnn er samþykktur og greiddur af FPA. Til þess að þú eigir rétt á grunnlífeyri, þarft þú að hafa búið a.m.k. í þrjú ár í Finnlandi eftir að hafa náð 16 ára aldri og aðrar bætur sem þú færð, mega ekki vera hærri en hámarkstekjur grunnlífeyrisþega.
Upphæð lífeyrisins getur einnig farið eftir því hvort þú ert gift(ur) eða í sambúð.
Sérstakar bætur fyrir innflytjendur
Innflytjendur sem náð hafa 65 ára aldri eða eru ekki færir um að vinna, geta fengið sérstakar bætur fyrir innflytjendur frá FPA, þegar þeir hafa verið búsettir í Finnlandi í samfellt 5 ár. Skilyrðin eru þau að þeir eigi ekki rétt á fullum grunnlífeyri.