Börn og fjölskyldur
Börn og fjölskyldur
Eftir að barn fæðist og vex úr grasi, á fjölskylda þess rétt á ýmsum bótum frá FPA, ef fjölskyldan fellur undir almannatryggingakerfið í Finnlandi. Sem dæmi um slíkar bætur má nefna mæðraaðstoð, foreldraorlofsgreiðslur og barnabætur.
Mæðraaðstoð
Þegar þú ert komin rúma 5 mánuði á leið (154 daga) getur þú sótt um mæðraaðstoð. Mæðraaðstoðin er annaðhvort pakki með ungbarnafötum og -vörum eða 140 skattfrjálsar evrur.
Foreldradagpeningar
Þegar þú eignast barn átt þú rétt á mæðra-, feðra- eða foreldraorlofsgreiðslum frá FPA. Foreldradagpeningarnir eru greiddir sem mæðraorlofsgreiðslur (105 dagar), sérstakar meðgöngubætur vegna áhættusamra starfa, feðraorlofsgreiðslur (18 dagar + möguleiki á lengingu feðraorlofs) og foreldaorlofsgreiðslur til móður eða föður (158 daga).
Til þess að þú getir átt rétt á bótum, verður þú að hafa verið búsett í Finnlandi samfleytt í 180 daga fyrir áætlaða fæðingu. Inn í þennan tíma má reikna búsetutíma á hinum Norðurlöndunum.
Barnabætur
FPA greiðir barnabætur vegna barna sem eru búsett í Finnlandi. Bótagreiðslurnar hefjast mánuði eftir fæðingu eða mánuði eftir að barnið hefur hlotið rétt til barnabóta, t.d. við flutning til Finnlands. Barnabæturnar greiðast í síðasta sinn þegar barnið hefur náð 17 ára aldri.
Barnabæturnar fara eftir fjölda barna.
ATH! Á Álandi eru barnabæturnar fjármagnaðar af svæðisstjórninni og upphæðin er hærri en á meginlandinu.
Bætur vegna heimaumönnunar og einkarekinnar dagvistunar
Þegar foreldraorlofinu lýkur, getur þú verið heima með barninu þínu og þegið bætur vegna heimagæslu og/eða valið einkarekna dagvistun eða valið opinbera dagvistun og ekki þegið bætur.