Atvinnuleysistryggingar
Atvinnuleysistryggingar
Ef þú verður atvinnulaus gætir þú átt rétt á tekjutengdum dagpeningum úr atvinnuleysistryggingarsjóðinum þínum eða fengið grunndagpeninga frá FPA. Ef þú hefur ekki áður verið úti á atvinnumarkaðinum, gætir þú átt rétt á atvinnumarkaðsstyrk.
Ef þú verður atvinnulaus skalt þú að skrá þig hjá atvinnumiðlun eins fljótt og auðið er.
Atvinnuleysisdagpeningarnir eru greiddir út samkvæmt tveimur mismundi kerfum. Ef þú ert ekki félagi í atvinnuleysistryggingarsjóði átt þú rétt á grunndagpeningum frá FPA. Ef þú ert aftur á móti félagi í atvinnuleysistryggingarsjóði áttu rétt á tekjutengdum dagpeningum úr eigin sjóði. Til þess að eiga rétt á tekjutengdum dagpeningum verður þú að hafa verið félagi í atvinnuleysistryggingarsjóðnum síðustu 10 mánuðina í það minnsta.
FPA tryggir afkomu atvinnulausra aðallega með atvinnumarkaðsstyrkjum og atvinnuleysisdagpeningum sem greiddir eru fyrir fimm daga vikunnar og falla undir skattskyldar tekjur.
Atvinnuleysisdagpeningar
Í stórum dráttum eru grunndagpeningarnir og tekjutengdu dagpeningarnir veittir á sama grundvelli. Þú átt rétt á atvinnuleysisdagpeningum ef þú ert á aldrinum 17–64 ára og ert atvinnulaus, býrð í Finnlandi, skráir þig hjá atvinnumiðlun, ert að leita þér að fullri vinnu, ert vinnufær og ert reiðubúin(n) að vinna.
Þú uppfyllir skilyrði til þess að teljast til launþega, ef þú hefur verið á vinnumarkaði í a.m.k. 18 tíma á viku í 43 vikur, síðastliðna 28 mánuði og þegið laun í samræmi við kjarasamninga viðkomandi stéttar eða a.m.k. 1 019 € á mánuði (árið 2009).
Atvinnuleysisdagpeningarnir eru greiddir að sjálfsábyrgðartíma loknum, þ.e. eftir 7 virka daga. Á þessu tímabili þarftu að vera á skrá hjá atvinnumiðlun. Til sjálfsábyrgðartímans er hægt að reikna atvinnuleysisdaga sem falla í mesta lagi á átta vikur í röð.
Atvinnumarkaðsstyrkur
Atvinnumarkaðsstyrkurinn er fjárhagslegur stuðningur fyrir fólk sem er að koma í fyrsta sinn út á atvinnumarkaðinn og fyrir fólk sem þegar hefur nýtt sér allan atvinnuleysisbótaréttinn. Til þess að eiga rétt á þessum styrk þarft þú ekki að hafa unnið úti áður, heldur ræður úrslitum að þú sért með fasta búsetu í Finnlandi.
Þú getur átt rétt á atvinnumarkaðsstyrk ef þú ert á aldrinum 17–64 ára og ef þú hefur ekki unnið í 10 mánuði síðustu 28 mánuði fyrir atvinnumissinn. Þú verður að vera með fasta búsetu í Finnlandi. Atvinnumarkaðsstyrkurinn er ekki greiddur á meðan þú ert að sækja um vinnu á hinum Norðurlöndunum. Rétturinn til þess að fá atvinnumarkaðsstyrk er metinn, sem þýðir að hann lækkar ef þú eða makinn þinn eruð með aðrar tekjur.