Yfirlit yfir ellilífeyri og örorkulífeyri

Örorkulífeyrir í Færeyjum

Það er hægt að veita einstaklingum á aldrinum 18 til 67 ára örorkulífeyri. Skilyrði fyrir úthlutun er að starfsgeta umsækjandans sé metin varanlega skert um sem nemur a.m.k. helmingi heildarstarfsgetu.

Það er og forsenda fyrir úthlutun lífeyrisins að ekki hafi verið mögulegt að bæta starfsgetu viðkomandi með sérstökum aðgerðum (starfsendurhæfingu o.fl.) eða að finna honum starf við hæfi.

Örorkulífeyrir flokkast í þrjá flokka. Röðun í flokka byggir á skorti á starfsgetu, aldri, starfsmöguleikum og öðrum sérstökum aðstæðum.

Örorkulífeyrir er tekjutengdur á grundvelli eigintekna lífeyrisþegans.
Tekjur hugsanlegs maka hafa engin áhrif á lífeyrinn.

Hægt er að veita sérstök viðbótarframlög í tengslum við örorkulífeyri, þar á meðal aðstoðar- og umönnunargreiðslur, bætur á grundvelli sértækrar þarfagreiningar og uppbót vegna lyfjakaupa.