Yfirlit yfir ellilífeyri og örorkulífeyri
Ellilífeyrir
Ellilífeyrir er greiddur til einstaklinga sem orðnir eru 67 ára. Lífeyririnn er samansettur af grunnlífeyri og lífeyrisviðbót.
Ellilífeyrir er greiddur til einstaklinga sem orðnir eru 67 ára. Lífeyririnn er samansettur af grunnlífeyri og lífeyrisviðbót.
Allir sem eru orðnir 67 ára og sem uppfylla almenn skilyrði um lífeyri, eiga rétt á því að fá grunnupphæðina greidda. Lífeyrisviðbótin er tekjutengd miðað við heildartekjur ellilífeyrisþegans og hugsanlegs maka.
Grunnupphæðin er ekki skattskyld en lífeyrisviðbótin er skattskyld. Ellilífeyrisþegar hafa sérstakan skattafrádrátt.
Einstaklingar sem hafa fengið aðstoðar- eða umönnunargreiðsla áður en þeir verða 67 ára halda því þegar þeir komast á ellilífeyri.
Auk lífeyrisviðbótar, aðstoðar- og umönnunargreiðsla, má greiða sérstakt persónuálag að undangenginni ákveðinni þarfagreiningu. Allir ellilífeyrisþegar eiga þar að auki rétt á uppbótum vegna lyfjakaupa.
Persónubundnar bætur, aðstoðar- og umönnunargreiðslur, eru ekki skattskyldar.