Fjölskyldubætur
Fjölskyldubætur
Dagpeningar í tengslum við fæðingar
Greidd er uppbót vegna tekjutaps í tengslum við fæðingu. Upphæð greiðslunnar er háð upphæð launa fyrir fæðingu. Skilyrði fyrir greiðslu er að viðkomandi sé tengdur vinnumarkaði sem launþegi eða sjálfstæður atvinnurekandi eða viðkomandi fái greiddar atvinnuleysisbætur. Aðrir einstaklingar fá félagslegar bætur sem byggja á útreiknaðri þörf. Fæðingardagpeningar eru að hámarki greiddir í 26 vikur og af því má úthluta 4-8 vikum fyrir fæðinguna. Hliðstæðar greiðslur eiga við um ættleiðingu.
Frekari upplýsingar um fæðingardagpeninga má fá með því að hafa samband við Barsilsskipanin.
Barnabætur
Greiddar eru barnabætur til vegna allra barna undir 18 ára aldri sem búa í Færeyjum. Bæturnar eru skattfrjálsar og tengdar tekjum foreldranna og eru greiddar sem skattafrádráttur. Meginreglan er að bæturnar eru greiddar móðurinni. Þar sem barnabæturnar eru að hluta greiddar af sveitarfélaginu eru þær örlítið breytilegar. Sem dæmi fékk fjölskylda í Þórshöfn 10.500 færeyskar krónur fyrir hvert barn á ári árið 2007.
Frekari upplýsingar um barnabætur færðu með því að hafa samband við sveitarfélagið þitt.