Atvinnuleysistryggingar
Atvinnuleysistryggingar í Færeyjum
Hér getur þú lesið meira um færeyskar atvinnuleysistryggingar, þar á meðal um greiðsluskilyrði, gjaldtöku o.fl.
Atvinnuleysistryggingar – ALS-fyrirkomulagið
Færeyskum atvinnuleysistryggingum - ALS fyrirkomulaginu – er stjórnað af sjálfstæðum sjóði. Þær eru fjármagnaðar þannig að allir vinnuveitendur, sem greiða laun og launþegar á aldrinum 16 til 67 ára og bera fulla skattskyldu í Færeyjum, greiða hver um sig 1% af fengnum eða greiddum launum til sjóðsins. Sjálfstæðir verktakar og aðrir sérstakir hópar eru ekki sjálfkrafa tryggðir með þessu fyrirkomulagi, en þeir geta valið að kaupa sér tryggingu.
Gjaldtakan í atvinnuleysistryggingasjóðinn fer sjálfkrafa fram með skattheimtu og það þýðir jafnframt að skráningin er sjálfvirk.
Fyrir launþega sem starfa við fiskvinnslu í landi, er sérstakt fyrirkomulag í tengslum við greiðslur úr sjóðnum. Það felur í sér greiðslu atvinnuleysisbóta vegna tímabundinnar vinnustöðvunar í sérstökum tilvikum. Hafið samband við ALS til þess að fá frekari upplýsingar um þetta.
Atvinnuleysistryggingarnar reka jafnframt atvinnumiðlun fyrir þá sem eru atvinnulausir og fá framlög frá sjóðnum. Það er hægt að vísa þér í vinnu hvar sem er landinu og án takmörkunar við ákveðnar starfsgreinar. Þú verður sem atvinnuleysisbótaþegi að vera tilbúinn til þess að taka hverri þeirri vinnu sem þú hefur faglega getu til þess að sinna.
Atvinnuleysisbætur
Greiðsla atvinnuleysisbóta byggir á meðallaunatekjum síðustu 12 mánaða og þar með er engin krafa um aðildar- eða atvinnuþátttökutímabil. Hæsta bótagreiðsla svarar til 70% af vinnulaunum ófaglærðs. Ekki er greitt viðbótarframlag vegna barna.
Heildar bótatímabilið eru 798 dagar á 5 ára tímabili, og eftir það áttu ekki rétt á bótum næstu 24 mánuðina.
Atvinnuleit á öðru Norðurlandi
Ef þú flytur frá öðru Norðurlandi til Færeyja, getur uppsafnaður réttur þinn til atvinnuleysisbóta flust til færeyska atvinnuleysissjóðsins. Hafðu samband við atvinnuleysistryggingarsjóðinn í því landi sem þú flytur frá.
Ef þú kemur til Færeyja í atvinnuleit, getur þú alla jafna þegið atvinnuleysisdagpeninga frá því landi sem þú flytur frá í 2 mánuði. Kynntu þér þetta betur hér (tengill).
Takið eftir því að sérstakar reglur gilda innan ríkjasambandsins á milli Danmerkur, Færeyja og Grænlands. Þannig er ekki hægt að taka með sér atvinnuleysisdagpeninga innan ríkjasambandsins. Hafðu samband við atvinnuleysistryggingarsjóðinn þinn til þess að fá frekari upplýsingar, ef þú vilt sækja um starf í öðru landi innan ríkjasambandsins.