Greiðslur til fjölskyldna
Greiðast frá landinu þar sem faðir eða móðir barnsins er tryggt í almannatryggingum (tilheyra almannatryggingakerfi).
Fjölskyldan flytur
Ef fjölskylda með börn flytur til annars norræns lands heyra fjölskyldumeðlimirnir undir almannatryggingar í nýja búsetulandinu og öðlast rétt til fjölskyldu- og foreldragreiðslna samkvæmt lögum nýja búsetulandsins.
Unnið í einu norrænu landi á meðan fjölskyldan býr í öðru norrænu landi
Landinu sem unnið er í ber að inna af hendi greiðslur til fjölskyldunnar, þ.e.a.s. landið þar sem hinn vinnandi er tryggður (í almannatryggingum). Ef samsvarandi greiðslur eru hærri í búsetulandinu á búsetulandið að greiða mismuninn. Fjölskyldan fær þar með heildarupphæð sem svarar til hærri upphæðarinnar.
Foreldrarnir vinna hvort í sínu landinu og búa í öðru þeirra
Vinnulandið þar sem fjölskyldan býr, á að greiða fjölskyldugreiðslurnar.. Hitt vinnulandið á að greiða út mismuninn ef fjölskyldugreiðslur þess eru hærri. Fjölskyldan fær þar samtals upphæð sem samsvarar hærri fjölskyldugreiðslunni.
Greiðslur til fjölskyldna og foreldra geta verið breytilegar á milli Norðurlandanna
Það gildir bæði um upphæðir og hvers konar greiðslur hægt er að fá. Leitið nánari upplýsinga um fjölskyldugreiðslur í hverju Norðurlandanna fyrir sig