Atvinnulaus

Atvinnulaus

Atvinnuleysisbætur

Ef þú ert aðili að atvinnuleysistryggingarsjóði (a-sjóði) í Danmörku, átt þú sem norrænn ríkisborgari rétt á atvinnuleysisbótum (dagpeningum), ef þú átt ekki sjálf(ur) sök á að þú ert atvinnulaus og uppfyllir að öðru leyti skilyrði fyrir greiðslu dagpeninga. 

Atvinnuleysistryggingasjóður/a-sjóður

Það er ekki skylda að vera aðili að atvinnuleysistryggingasjóði (a-kasse) í Danmörku. Þú verður því sjálf(ur) að skrá þig í atvinnuleysistryggingasjóð. Sjóðurinn verður að vera viðurkenndur af ríkinu og það er frjálst val hvort þú vilt vera félagi í atvinnuleysistryggingasjóði.

Greiðslur vegna atvinnuleysis á Norðurlöndunum

Hér getur þú fundið yfirlit yfir greiðslur vegna atvinnuleysis á Norðurlöndunum.

Lesið meira um greiðslur vegna atvinnuleysis á Norðurlöndunum