Almannatryggingar á Norðurlöndum

Þeir sem eru búsettir á Norðurlöndum tilheyra almannatryggingum í því landi, ef þeir vinna ekki í öðru landi.

Launþegi tilheyrir almannatryggingum í landinu þar sem hann vinnur. Það á við þótt hann flytji ekki til þess lands heldur búi áfram í öðru norrænu landi.  Þetta leiðir af reglunum í Norðurlandasamningum um almannatryggingar sem fylgir sömu  reglum og reglur Evrópusambandsins/Evrópska efnahagssvæðisins.

Þú og maki þinn og börn öðlist sama rétt til almannatryggingagreiðslna í nýja búsetulandinu eða landinu sem  farið er að vinna í og ríkisborgarar þess lands. Þetta  leiðir af reglunum í Norðurlandasamningum um almannatryggingar.

Vakin er athygli á því að reglurnar, ásamt tegundum og upphæðum aðstoðar, geta verið breytilegar frá einu landi til annars. Löggjöfin  er ekki eins á öllum Norðurlöndunum.

Aðrar reglur kunna að gilda um þá er eru ekki norrænir ríkisborgarar.  Mælt er með því að menn kynni sér nánar hvaða reglur gilda um þá.

Frekari upplýsingar er að finna á öðrum síðum vefgáttarinnar.